Opnar skjalagrunn
 



 

Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Landsbjargar heldur uppi öflugu fræðslustarfi fyrir félaga í samtökunum og aðra landsmenn. Á hverju ári eru haldin um 250 námskeið um land allt og er fjöldi þátttakenda um 2500 manns ár hvert. Skólinn er farskóli sem heldur námskeið í húsnæði björgunarsveita um land allt. Auk þess er skólinn í fararbroddi í þróun fræðslustarfs björgunarsveita í landinu. Námskeiðum skólans er skipt í þrennt, fyrst koma grunnnámskeið, svo framhaldsnámskeið og að lokum fagnámskeið. Þegar menn hafa lokið þessum þremur stigum í þjálfun á einhverju sviði geta þeir sótt leiðbeinendnámskeið hjá skólanum. En einkunnarorð skólans lýsa öðru fremur að hverju skólinn stefnir, en þau eru: ÞEKKING-ÖRYGGI.

Dagskrá skólanns
Fyrirspurnir til Björgunarskólans
Björgunarmaður 1 - heildarnámskeið haust 2007