Flugeldasala björgunarsveitanna
Flugeldamarkaðir björgunarsveitanna leggja mikla áherslu á gott úrval vandaðra flugelda. Á þessari heimasíðu er að líta flest það helsta sem er á boðstólnum en þess ber þó að geta að á sumum Flugeldamörkuðunum má finna enn meira úrval litríkra flugelda af öllum stærðum og gerðum. Líttu við á einhverjum af Flugeldamörkuðum okkar og spjallaðu við björgunarsveitafólkið sem þar er og veit flest um flugelda. Börnin geta skilað inn myndinni sem er aftast í blaðinu í von um vænan vinning og þú færð fyrsta flokks þjónustu, frábæra flugelda og styður við bakið á björgunarsveitinni þinni í leiðinni.
Björgunarsveitirnar hófu að selja flugelda í fjáröflunarskyni í lok sjöunda áratugarins. Fyrst hófst flugeldasala í Reykjavík en fljótlega hófu björgunarsveitir um allt land að selja enda hefur almenningur alla tíð tekið flugeldasölu björgunarsveitanna vel. Í dag, rúmum þrjátíu árum eftir að flugeldasala í fjáröflunarskyni hófst hjá björgunarsveitunum, er hún orðin mikilvægasta tekjulind þeirra. Án þess mikla stuðnings sem almenningur sýnir björgunarsveitunum með kaupum á flugeldum væri ekki hægt að halda úti því öfluga öryggisneti sem björgunarsveitirnar eru fyrir Íslendinga.
Forvarnarmynd um flugelda Ekkert fikt
Opnun er frá 28. - 30. desember frá 09:00 - 22:00 en á gamlársdag er opið til klukkan 16:00
|