![]()
![]() |
||
|
Slysavarnaskóli sjómanna er í eigu Slysavarnafélagsins Landsbjargar en hann var stofnaður árið 1985 til að sinna öryggisfræðslu fyrir sjómenn. Námskeið skólans eru öllum opin en á námskrá er að finna námskeið, sem henta þeim sem vinna á sjó, við hafnir eða dvelja við leik og störf við ár eða vötn. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á fjölda afmarkaðra námskeiða, sem sniðin eru með þarfir íslenskra sæfarenda í huga. Vorið 2005 fékk Slysavarnaskóli sjómanna, fyrstur skóla á Íslandi, vottorð Vottunar hf. til staðfestingar á að skólinn starfrækti gæðakerfi sem samræmis kröfum í ÍST EN ISO 9001:2000 gæðastaðlinum.
Vottorðið tekur til reksturs skólans til að annast fræðslu um öryggis- og björgunarmál sjófarenda, og nær það yfir hönnun, sölu og kennslu á skyldu- og sérnámskeiðum, þ.m.t. öryggisfræðslunámskeiðum samkvæmt STCW alþjóðasamþykktinni (International Convention on Standards of Training, Certification and Watchkeeping for Seafarers). GÆÐASTEFNA Slysavarnaskóli sjómanna á að vera skóli í háum gæðaflokki.
Slysavarnafélagið Landsbjörg er aðili að alþjóðasamtökum sjóbjörgunarskóla.
Slysavarnaskóli sjómanna
Ljósmyndir er eftir: Þorgeir Baldursson, Trygdarmiðstöðina og Slysavarnaskóla sjómanna |