![]()
![]() |
||
| Áður fyrr var algengt að ekkert fréttist af ferðum skipa og báta á höfum úti dögum, vikum og jafnvel mánuðum saman. Heima biðu ættingjar og ástvinir milli vonar og ótta um hvort sjómennirnir næðu heilir í höfn. Á sjöunda áratugnum urðu mannskæð sjóslys sem höfðu djúpstæð áhrif á fólkið i landinu og leiddu til þess að Tilkynningaskylda íslenskra skipa var sett á laggirnar vorið 1968 að frumkvæði sjómanna og Slysavarnafélagsins. Var þá stigið eitt stærsta skref sem stigið hefur verið í átt að auknu öryggi sæfarenda á síðari árum. Sjómenn áttu sjálfir mikinn þátt í undirbúningnum og hafa stutt Tilkynningaskylduna æ síðan og tekið virkan þátt í starfi hennar.
|
|